Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

jæja jæja

08. júní 2008 klukkan 20:02
það er mikið búið að gerast síðan síðast

en í stuttu máli þá gengur rosa vel með pjakk, hann er á tímabili núna og spir AFHVERJU  við öllu, og stundum getur verið ervitt að svara:) en hann er æði í einu og öllu, 
  gengur rosa vel að hætta að pissa undir og það voru bara 2 slys í maí og ekkert enn af júní enda bara nokkrir dagar. já en hegðunarstjörgnurnar eru nú mismunandi eftir daga en hann er oftast með 2 stjörnur, ;)
  svo voru núna um helgina í heimsókn Bjarney (eða ská amma hans, mamma Ingibjargar) og Kjartan 'Oli frændi Ingibjargar. og var sko nóg að gera.
svo er búið að vera útskrift í leikskólanum og er hann Elvar að fara hætta eða verður bara út Júlí og svo byrjar skólinn í Ágúst og erum við búin að fara í skólann og hitta kennaranna og skoða skólann, þetta er ótrúleg spenna og mikið sem þarf að læra í sumar fyrir skólann;)

en Elvar verður svo hjá mömmu sinni núna mest allann Júní eða frá 12jún til 1 júl þar sem við Sigfús og Ingibjörg erum að fara út í keppnisferð, ,

en þetta er ekki meira í bili
kveðja frá Akureyri
Elvar Sigfús og Ingibjörg

sunnudagurinn 9 mars

09. mars 2008 klukkan 19:30
jæja þá kemur smábloggfærsla
en við erum búin að gera stjörnukerfi fyrir Elvar og  gengur rosalega vel, við gerðum dagatal sem er á ískápnum og hann getur unnið sér inn 2 stjörnur yfir daginn, önnur er fyrir hegðun og allt það sem því fylgir, en hin er ef hann pissar ekki undir, (hann hefur átt pínu vandamál með það, enda í báðum ættum þetta vandamál)
en hann er búinn að fá eina stjörnu fyrir hegðun alla daga vikunnar nema hálfa einn daginn og ein pissustjarna er komin, þannig þetta gengur bara þokkalega vel :)

við fórum í sund í dag og er hann alltaf að verða frakkari og frakkari í vatninu og við höfum verið að reyna kenna honum að byrja synda smá! þetta er fljótt að koma enda er hann fljótur að læra.

við fórum á föstudaginn á danssýningu sem var í leikskólanum  æðislega gaman að sjá þetta hjá þeim og flottir krakkarnir að dansa saman bara 5 ára :)

kveðja  við þrjú

hæ hó

06. mars 2008 klukkan 11:04
hæhæ ég heiti Elvar Freyr og er 5 ára.
Ég bý á akureyri hjá pabba mínum( Sigfúsi) og konunni hans (Ingibjorgu)
en hér ætla þau að skrifa nokkra punkta um mig hvað ég er að gera og hvernig mér gengur svo allir geta fylgst með mér.
 kveðja Elvar ;)

Klukkan

Auglýsing

Atburðarteljari

Atburðarteljari